Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir verkstjórum Vinnuskóla Hafnarfjarðar sumarið 2021
Um er að ræða tímabundna ráðningu í sumar, en um er að ræða 2-4 mánaða sumarstarf frá maí/júní til júlí/ágúst.
Næsti yfirmaður er umsjónarmaður Vinnuskólans en starfað er í nánu sambandi við garðyrkjustjóra Hafnarfjarðar. Verkefni Vinnuskólans eru fjölmörg en meginþorri vinnuhópa vinna að umhirðu bæjarins og tiltekt.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Hæfniskröfur:
Eftirfarandi störf eru í boði í sumar. Vinsamlegast takið fram í athugasemdum hvaða starfi þið óskið helst eftir. Umsækjendur skulu vera 21. árs eða eldri.
Verkstjóri vinnuskóla
Auglýst er eftir verkstjórum til sumarstarfa við verkstjórn almennra hópa Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjan maí fram í ágúst. Vinnutími er frá kl. 8:30 til 16.30 alla virka daga. Um er að ræða útistörf.
Skólahverfum bæjarins er skipt í tvennt og ber verkstjóri ábyrgð á öðrum helmingnum. Verkstjóri stýrir og leiðbeinir verkefnum flokkstjóra á verkstað og gerir vinnuskýrslur fyrir flokkstjóra.
Verkstjóri slátturhóps
Auglýst er eftir verkstjóra til sumarstarfa við verkstjórn slátturhóps Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjan maí fram í ágúst. Vinnutími er frá kl. 8:30 til 16.30 alla virka daga. Um er að ræða útistarf. Verkstjóri bera ábyrgð á sínum slátturhóp, stýrir verkefnum á verkstað, gerir vinnuskýrslur fyrir hópinn og hefur umsjón með vélum og búnaði sláttuhópa.
Verkstjóri viðhaldshóps
Auglýst er eftir verkstjóra til sumarstarfa við verkstjórn viðhaldshóps Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjan maí fram í ágúst. Vinnutími er frá kl. 8:30 til 16.30 alla virka daga. Um er að ræða útistarf. Verkstjóri bera ábyrgð á sínum hóp, stýrir verkefnum á verkstað og gerir vinnuskýrslur fyrir hópinn.
Verkstjóri Hellisgerði
Auglýst er eftir verkstjóra til sumarstarfa við verkstjórn garðyrkju í Hellisgerði. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjan maí fram í ágúst. Vinnutími er frá kl. 8:30 til 16.30 alla virka daga. Um er að ræða útistarf. Verkstjóri bera ábyrgð á sínum hóp, stýrir verkefnum á verkstað og gerir vinnuskýrslur fyrir hópinn.
Verkstjóri blómahóps
Auglýst er eftir verkstjóra til sumarstarfa við verkstjórn blómahóps Vinnuskólans. Starfstímabilið er allt sumarið frá miðjan maí fram í Ágúst. Vinnutími er frá 8:30 til 16:30 alla virka daga. Um era ð ræða útistarf. Verkstjóri ber ábyrgð á sínum hóp, stýrir verkefnum á verkstað og gerir vinnuskýrslur fyrir hópinn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Verkalýðsfélagið Hlíf.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sunna Magnúsdóttir, rekstrarstjóri, sunnam@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5759.
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2021.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.