Í boði eru fjölbreytt sumarafleysingastörf fyrir hjúkrunarfræðinga á flestum deildum Sjúkrahússins á Akureyri. Sjúkrahúsið veitir almenna og sérhæfða heilbrigðisþjónustu, þar sem áhersla er lögð á bráðaþjónustu og helstu sérgreinameðferðir. Það er annað tveggja sérgreinasjúkrahúsa landsins. Sjúkrahúsið er kennslusjúkrahús og fyrsta heilbrigðisstofnunin á Íslandi til að hljóta alþjóðlega gæðavottun á starfsemi sinni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Hæfnikröfur
Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenkst starfsleyfi - Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum - Jákvæðni og sveigjanleiki - Starfsreynsla í hjúkrun æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Við ráðningar er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: Öryggi Samvinna Framsækni. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.02.2021
Nánari upplýsingar veitir
Hulda Sigríður Ringsted - huldari@sak.is - 4630100