Laust er til umsóknar hálft starf (50%) aðjúnkts í hjúkrunarfræði með áherslu á kennslu í barnahjúkrun. Leitað er að hjúkrunarfræðingi með sérþekkingu á sviði barnahjúkrunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Við leitum að öflugum einstaklingi með góða þekkingu á barnahjúkrun og barnasjúkdómafræði. Starfið felur í sér að hafa umsjón með námskeiði í barnahjúkrun, fræðilega og klíníska kennslu í barnahjúkrun, rannsóknir og stjórnun. Næsti yfirmaður er formaður hjúkrunarfræðideildar. Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri. Staðan er veitt frá og með 1. ágúst 2021. Um ótímabundið starf er að ræða. Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á sveigjanlegt nám í hjúkrunarfræði. Námið er fjögurra ára nám til BS prófs. Niðurstöður kannana meðal nemenda sýna ánægju með gæði og innihald námsins. Nám í hjúkrunarfræði er fyrir öll kyn. Samkeppnispróf eru haldin við lok fyrsta misseris og ákvarða hverjir fá að halda áfram námi á vormisseri fyrsta árs. Fjöldi nemenda eftir haustmisseri fyrsta árs er u.þ.b. 75 á hverju kennsluári. Fastráðnir starfsmenn deildarinnar er tæplega 20 manna metnaðarfullur hópur, samsettur af akademískum starfsmönnum, verkefnastjórum og aðjúnktum. Einnig koma fjölmargir stundakennarar að kennslu í deildinni bæði í fræðilegu og klínísku námi.
Hæfnikröfur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 með síðari breytingum, og reglur fyrir Háskólann á Akureyri. nr. 387/2009. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2021
Nánari upplýsingar veitir
Margrét Hrönn Svavarsdóttir - mhs@unak.is, deildarformaður Hjúkrunarfræðideildar - 4608471
Eydís Kr Sveinbjarnardóttir - eydis@unak.is, forseti Heilbrigðisvísindasviðs - 4608482